Fotbolti.net
15.10.08 - 12:10
Hafliði Breiðfjörð

Gary Wake tekur við kvennaliði Breiðabliks (Staðfest)

Gary Wake tekur við kvennaliði Breiðabliks (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Kvennaboltinn
Gary Wake hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks en þetta var staðfest á vefsíðu félagsins í gærkvöld. Wake sem er breskur gerir tveggja ára samning við Breiðablik en hann hefur búið hér á landi í fjölda ára.
Gary er með UEFA A þjálfaragráðu og hefur verið aðstoðarþjálfari U 19 ára kvennalandsliðs Íslands frá árinu 2005 og mun hann gegna því starfi samhliða þjálfun hjá Breiðabliki.

Árin 2006 til 2008 var Gary aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fram og árið þar á undan var hann aðstoðarþjálfari 2. og 3. flokks karla hjá Fram. Þar áður var Gary aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki í eitt ár.

Árin 1999-2001 var Gary aðstoðarþjálfari í Southampton háskóla. Þá var hann aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Val árin 1995-2001 auk þess sem hann var aðalþjálfari 2. flokks kvenna Vals 1995-1997.

Hann tekur við starfinu hjá Breiðablik af Vöndu Sigurgeirsdóttur sem þjálfaði liðið í sumar en hún er að halda til náms á Ítalíu og gat því ekki stýrt liðinu áfram.

Heimild: Vefsíða Breiðabliks

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.