Fotbolti.net
15.11.08 - 13:48
Hafliði Breiðfjörð

Rúna Sif, Anna Sigurðardóttir og Fjolla Shala til Fylkis (Staðfest)

Stúlkurnar eftir undirskriftina ásamt þjálfurum sínum.  Frá vinstri. Björn Kristinn Björnsson þjálfari, Fjolla Shala, Rúna Sif Stefánsdóttir, Anna Sigurðardóttir og Lidija Stojkanovic spilandi aðstoðarþjálfari.

Stúlkurnar eftir undirskriftina ásamt þjálfurum sínum. Frá vinstri. Björn Kristinn Björnsson þjálfari, Fjolla Shala, Rúna Sif Stefánsdóttir, Anna Sigurðardóttir og Lidija Stojkanovic spilandi aðstoðarþjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fylkir gekk í dag frá samningum við þrjá nýja leikmenn sem eru að ganga til liðs við félagið. Þetta eru þær Rúna Sif Stefánsdóttir sem kemur frá Fjölni, Anna Sigurðardóttir sem kemur frá Þrótti og Fjolla Shala sem kemur frá Leikni. Áður hafði varnarmaðurinn sterki Lidija Stojkanovic komið frá HK/Víkingi.

Nánar var rætt við leikmennina um félagaskiptin í viðtölum sem birtast hér á Fótbolta.net síðar í dag.
Rúna Sif Stefánsdóttir Rúna er fædd 1989 og hefur allann sinn feril spilað hjá Fjölni. Hún hefur spilað 38 leiki í efstu deild og skorað í þeim 8 mörk. Rúna á að baka marga yngri landsleiki en hún hefur spilað 8 leiki með U-17 og 14 leiki með U-19 og skorað í þeim 1 mark. Samningur Rúnu við Fylki er til tveggja ára.

Anna Sigurðardóttir kemur til Fylkis frá Þrótti en þar hefur hún spilað undanfarin ár. Árið 2005 var hún í KR en hélt þaðan í Þrótt. Anna hefur að mestu spilað sem kantmaður. Samningur hennar við Fylki er til tveggja ára.

Fjolla Shala er uppalin í Leikni og mun æfa með meistaraflokki félagsins. Fjolla er fædd 1993 en þrátt fyrir ungan aldur á hún að baki 4 leiki í Landsbankadeildinni en þá spilaði hún fyrir Fjölni árið 2007 (var þar í láni). Fjolla á að baki 7 leiki með U-17 ára landsliði Íslands.

Lidija Stojkanovic gekk fyrir skömmu til liðs við Fylki en hún mun bæði spila með liðinu og vera aðstoðarþjálfari liðsins. Lidija hefur spilað með HK/Víking undanfarin ár hér á landi en hún hefur spilað með landsliði Serbíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.