Fotbolti.net
15.11.08 - 16:49
Hafliði Breiðfjörð

Helga Franklínsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Helga í leik með Fjölni í Landsbankadeildinni í sumar.

Helga í leik með Fjölni í Landsbankadeildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Helga Franklínsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar frá Fjölni og hefur gert þriggja ára samning við Garðabæjarfélagið.
Helga sem er tvítug hefur verið lykilmaður í liði Fjölnis undanfarin ár en liðið féll niður í 1. deild í haust og hún ákvað að söðla um og valdi að ganga til liðs við Stjörnuna.

Hún er miðjumaður sem skoraði tvö mörk í 14 leikjum fyrir Fjölni í Landsbankadeildinni í sumar.

Hún hefur alla sína tíð leikið með Fjölni og hóf meistaraflokksferil með Fjölni sumarið 2004. Síðan þá hefur hún leikið 86 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 30 mörk.

Hún er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Stjörnunnar frá því tímabilinu lauk. Áður hafði Hrefna Huld Jóhannesdóttir komið frá KR og Íris Ósk Valmundsdóttir frá Fjölni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.