Fotbolti.net
15.11.08 - 17:43
Hafliði Breiðfjörð

Elvar Grétarsson ráðinn þjálfari kvennaliðs Keflavíkur (Staðfest)

Elvar Grétarsson.

Elvar Grétarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Keflavík hefur ráðið Elvar Grétarsson sem næsta þjálfara kvennaliðs félagsins en hann tekur við starfinu af Ásdísi Þorgilsdóttur sem stýrði liðinu tímabundið út tímabilið eftir að Salih Heimir Porca hafði hætt með liðið.

Elvar gerir þriggja ára samning um að þjálfa kvennalið Keflavíkur sem endaði í 8. sæti Landsbankadeildar kvenna í sumar.
Elvar stýrði sjálfur karlaliði Reynis frá Sandgerði tímabundið frá 31. júlí og út tímabilið eftir að Bryngeir Torfason hafði hætt með það liðið. Reynir réði svo Kristófer Skúla Sigurgeirsson sem þjálfara.

Elvar hefur reynslu af þjálfun kvennaliðs líka því hann hafði stýrt Haukum sumarið 2005. Þar áður hafði hann verið yfirþjálfari yngri flokka Reynis/Víðis í sex ár og þjálfað meistaraflokk Reynis og Víðis í Garði í karlaflokki.

Hann hafði einnig áður stýrt kvennaliði GRV ásamt Jóni Ólafi Daníelssyni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.