15.12.08 - 19:40
Hafliði Breiðfjörð
Anna Björg Björnsdóttir til Fylkis (Staðfest)

Anna Björg í búningi Fylkis í kvöld eftir undirskriftina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Anna Björg Björnsdóttir er gengin ag í raðir Fylkis og spilar með liðinu í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð. Hún skrifaði undir samning við félagið nú í kvöld og verður með Fylki alla næstu leiktíð.
Anna Björg sem er 27 ára gömul þekkir vel til hjá Fylki því þar lék hún tímabilin 2005, 2006 og 2007 en hélt eftir það tímabil til Danmerkur þar sem hún hefur verið síðan. Hún kom þó hingað til lands undir lok tímabils í fyrra og spilaði síðustu fimm leiki Fylkis.
Hún á að baki fjóra leiki með A-landsliði Íslands og mun án efa berjast um sæti í íslenska landsliðshópnum sem fer á Evrópumót kvennalandsliða næsta sumar. Anna er mikill markaskorari og hefur leikið 78 mótsleiki fyrir Fylki og skorað í þeim 78 mörk. Hún hefur leikið 30 leiki fyrir Fylki í Landsbankadeildinni og skorað í þeim 19 mörk.
Fylkir tilkynnti einnig í kvöld að Fjalar Þorgeirsson markvörður karlaliðs félagsins muni verða markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna og yngri markmanna félagsins.
Fylkir hefur styrkt lið sitt nokkuð frá síðustu leiktíð því Anna Björg er sjötti leikmaðurinn sem kemur til félagsins. Áður höfðu komið þær Danka Podovac frá Keflavík, Lidija Stojkanovic frá HK/Víking, Rúna Sif Stefánsdóttir frá Fjölni, Anna Sigurðardóttir frá Þrótti og Fjolla Shala frá Leikni.
Rætt verður við Önnu Björgu og Björn Kristinn Björnsson þjálfara Fylkis hér á Fótbolta.net á morgun.