Fotbolti.net
15.12.09 - 15:50
Hafliði Breiðfjörð

Guðni Páll Kristjánsson lánaður frá FH Í ÍR (Staðfest)

Guðni Páll fagnar sigri í leik meistara meistaranna með FH í vor.

Guðni Páll fagnar sigri í leik meistara meistaranna með FH í vor.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Páll Kristjánsson varnarmaður FH er að ganga til liðs við ÍR á láni út næsta tímabil en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag. Hann mun skrifa undir félagskiptin í dag eða á morgun.
Hjá ÍR hittir Guðni Páll fyrir Guðlaug Baldursson sem þjálfar liðið en hann hefur starfað við þjálfun hjá FH undanfarin ár og því þekkjast þeir vel.

,,Laugi var að þjálfa hjá FH og við þekkjumst ágætlega, það eru líka nokkrir flottir FH-ingar þarna. Haukar voru í myndinni og Leiknir og Hamar höfðu samband en þetta var aðallega ÍR,\" sagði Guðni Páll við Fótbolta.net.

Guðni Páll er tvítugur. Hann lék sem hægri bakvörður með FH í sumar en getur líka spilað á hægri kantinum.

Hann lék þrjá leiki með FH í Pepsi-deilidnni í sumar auk þess sem hann lék í VISA-bikarnum og Meistaradeild Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.