Fotbolti.net
16.01.21 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Karitas í Breiðablik (Staðfest)

Karitas Tómasdóttir.

Karitas Tómasdóttir.

Canon

Mynd: Breiðablik

Hertz
Miðjumaðurinn öflugi Karitas Tómasdóttir skrifaði í dag undir samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Karitas er fædd árið 1995 og kemur frá Hellu. Hún hóf knattspyrnuferil sinn með KFR en skipti yfir í Selfoss á sautjánda ári. Hjá Selfossi hefur hún verið algjör lykilmaður undanfarin ár.

Hún hefur leikið 121 leik í deild og bikar með Selfossi og varð bikarmeistari með þeim árið 2019. Hún var í kjölfarið kosin besti leikmaður úrslitaleiksins á flestum miðlum. Hún stundaði nám í Bandaríkjunum frá 2015-2018 og lék samhliða því með TCU háskólanum í Texas.

„Karitas er afar öflugur leikmaður, sterk í návígum, með mikla hlaupagetu og það er mikið fagnaðarefni að hún hafi valið að koma í Breiðablik," segir í tilkynningu Blika.

Breiðablik varð Íslandsmeistari á síðasta ári en Selfoss hafnaði þá í fjórða sæti Pepsi Max-deildar kvenna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.