16.03.10 - 13:28
Magnús Már Einarsson
Andri Steinn Birgisson í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Andri Steinn Birgisson hefur gengið formlega til liðs við Keflavík en hann fékk félagaskipti í dag og getur því leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Breiðablik í Lengjubikarnum annað kvöld.
Fótbolti.net greindi frá því fyrir helgi að Andri Steinn væri búinn að ná munnlegu samkomulagi við Keflavík en nú hefur verið gengið frá samningum og félagaskiptin hafa gengið í gegn.
Andri Steinn, sem er 26 ára gamall, fór til Noregs fyrir ári en hann samdi þá við Asker.
Hann lék með Asker fyrri hlutann af síðasta tímabili en í júlí fór hann í uppeldisfélag sitt Fjölni þar sem að hann lék út sumarið.
Andri lék með Grindavík áður en hann fór til Asker en hann hefur einnig leikið með Fram, Fjölni, Víkingi R., Fylki og Aftureldingu hér á landi.