Fotbolti.net
16.03.10 - 15:13
Magnús Már Einarsson

Kristján Páll í KA (Staðfest)

Kristján í leik með Magna í fyrra.

Kristján í leik með Magna í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

KA hefur fengið vinstri bakvörðinn Kristján Pál Hannesson til liðs við sig frá Magna.
Hjalti Már Hauksson sem lék í vinstri bakverði hjá KA í fyrra er farinn til Víkings R. og Ingi Freyr Hilmarsson, sem gat einnig leikið í þeirri stöðu, er farinn til Noregs.

Kristján Páll er uppalinn Þórsari en hann gekk til liðs við Magna síðastliðið vor.

Síðastliðið sumar skoraði hinn 22 ára gamli Kristján Páll þrjú mörk í fjórtán leikjum með Magna í annarri deildinni en hann á einnig að baki leiki með Þór í fyrstu deildinni.

Kristján Páll er sem stendur staddur úti í Bandaríkjunum þar sem hann stundar nám en hann kemur til landsins í vor þegar að mótið byrjar.

Heimild: Heimasíða KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.