16.03.12 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Ismet Duracak í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Selfyssingar hafa samið við markvörðinn Ismet Duracak sem hefur verið á reynslu hjá liðinu undanfarna daga.
Ismet er 26 ára gamall Bosníumaður en hann hefur varið mark Hönefoss í Noregi undanfarin ár.

Hann mun keppa um markmannsstöðuna hjá Selfyssingum við Jóhann Ólaf Sigurðsson og Elías Örn Einarsson.
Ismet er kominn með leikheimild með Selyssingum og gæti því leikið með liðinu gegn Haukum í Lengjubikarnum á morgun.
Með komu Ismet er möguleiki á að tólf erlendir leikmenn verði á mála hjá Selfyssingum í sumar þar sem tveir nýir leikmenn frá Senegal eru einnig væntanlegir til félagsins á reynslu á næstunni.
Fyrir eru í hópnum fjórir Senegalar, fjórir Norðmenn og Englendingurinn Joe Tillen. Þó bendir allt til þess að Sene Abdalha, Ibrahima Ndiaye og Sidy Sow fari í önnur íslensk félög á láni en nokkur félög hafa sýnt þeim áhuga.