Fotbolti.net
16.03.12 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Friðrik Dór í ÍH (Staðfest)

Friðrik Dór í ÍH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson hefur ákveðið að rífa fram takkaskóna og leika með ÍH í þriðju deildinni í sumar. Friðrik Dór lék alla yngri flokkana með FH og æfði síðan með ÍR áður en hann lagði skóna á hilluna sumarið 2009.
,,Tónlistin verður líklega áfram í fyrsta sæti. Ég reyndi að fá einhverja peninga en ég sætti mig á endanum að spila launalaust með ÍH, maður gerir allt fyrir félagið. Þetta er stór klúbbur og ég ætla að reyna að festa ÍH í sessi sem stórlið í þriðju deildinni,\" sagði Friðrik Dór í samtali við Fótbolta.net í dag.

,,Við stefnum á að verða Íslandsmeistarar árið 2014, árið á eftir Víkingi. Það eru margir styrktaraðilar sem hafa áhuga á að leggja stórar fjárhæðir í félagið og þar spilar ímynd mín mikið inn í. Ég á ekki von á öðru en að á næsta tímabili verði allir leikmenn komnir á launaskrá og geti einbeitt jafnvel sér alveg að knattpyrnunni.\"

Friðrik Dór er spenntur fyrir að byrja í boltanum aftur eftir tæplega þriggja ára hlé.

,,Ég er búinn að vera að þjálfa sjöunda flokkinn hjá FH og það er aðallega þar sem ég hef verið að halda touchinu við. Ég hef verið að gefa af mér en núna er kominn tími á að sinna sjálfum sér,\" sagði Friðrik sem býst við að spila á miðjunni eða í bakverði.

,,Fannsi Gumm þjálfari er með mjög sterka sýn á hvernig hann vill að félagið spili og ég verð að spila þá stöðu sem hann segir til um. Ég er bara glaður á meðan ég fæ að spila. Í gamla daga spilaði ég á miðju og í bakverði svo ég mun líklega verða eitthvað á þeim slóðum.\"

Friðrik Dór er einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og þrátt fyrir að það sé mikið að gera hjá honum þar þá hefur hann einnig tíma fyrir fótboltann.

,,ÍH á æfir á mjög sérkennilegum tímum sólarhringsins þar sem þetta er algjört afgangs atriði hjá bæjaryfirvöldum. Við erum á miðvikudögum klukkan 10 og laugardagsmorgnum klukkan hálf níu þannig að þetta gengur allt saman upp,\" sagði Friðrik léttur í bragði að lokum.

ÍH mun leika í þriðju deildinni í sumar eftir að hafa fallið úr annarri deildinni síðastliðið haust. Nokkrir leikmenn hafa gengið til liðs við félagið að undanförnu en þar á meðal er miðjumaðurinn Heimir Snær Guðmundsson sem hefur leikið með ÍR undanfarin tvö eftir að hafa áður verið á mála hjá Fjölni, ÍBV og FH.
Friðrik Dór í ÍH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.