16.03.12 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Gregor Mohar í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Keflavíkur

Mynd: Heimasíða Keflavíkur
Keflvíkingar hafa fengið Gregor Mohar til liðs við sig en hann skrifaði undir samning við félagið í morgun.
Gregor hefur æft með Keflvíkingum undanfarna daga en hann stóðst þær væntingar sem voru gerðar til hans og í kjölfarið var ákveðið að semja við hann.

Gregor, sem er 26 ára gamall, lék síðast með NK Radomlje í 2. deildinni í Slóveníu en þar áður með NK Livar og FK Sarajevo.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Keflavík fær í sínar raðir í vetur en Grétar Atli Grétarsson kom frá Stjörnunni, Jóhann Ragnar Benediktsson frá Fjarðabyggð auk þess sem Haraldur Freyr Guðmundsson kom aftur eftir stutta dvöl í Noregi.