Fotbolti.net
16.04.09 - 16:12
Magnús Már Einarsson

Árni Ingi Pjetursson í Gróttu (Staðfest)

Árni Ingi Pjetursson í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Árni Ingi Pjetursson hefur gengið til liðs við Gróttu eftir að hafa leikið með Skagmaönnum síðastliðið sumar.
Í fyrra lék hinn 29 ára gamli Árni Ingi tólf leiki í efstu deild en þessi sóknar og miðjumaður þekkir til hjá Gróttu því að hann hjálpaði liðinu að komast upp úr þriðju deildinni árið 2007.

Áður hafði Árni leikið með Val og einnig í Bandaríkjunum þar sem hann var í háskóla.

Hann lék alls 20 leiki með U-17 ára landsliðinu á sínum tíma og 26 leiki með U-19 ára landsliði Íslands en hann hefur leikið flesta U-19 ára landsleiki fyrir Íslands hönd.

Árni varð yngsti leikmaðurinn í efstu deild frá upphafi þegar hann kom inn á í leik með KR gegn Val í september 1994 og það met stóð þar til í 17.umferð Landsbankadeildarinnar sumarið 2007 að Sigurbergur Elísson leikmaður Keflvíkinga sló metið.

Grótta hefur verið að styrkja sig fyrir átökin í annarri deildinni en liðið hefur meðal annars fengið Kristján Finnbogason frá KR og Edilon Hreinsson frá Haukum. Þá er annar reynslubolti, Sigurvin Ólafsson, einnig á mála hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.