Fotbolti.net
16.05.09 - 08:28
Magnús Már Einarsson

Hvöt fær Halldór Frey og Milan Lazarevic (Staðfest)

Halldór Freyr er farinn í Hvöt.

Halldór Freyr er farinn í Hvöt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvöt hefur fengið Halldór Frey Ásgrímsson til liðs við sig frá Fjölni.
Halldór, sem verður 21 árs síðar í mánuðinum, getur leikið á miðjunni og í fremstu víglínu.

Halldór lék fimm leiki með Fjölni sumarið 2007, meðal annars úrslitaleik Visa-bikarsins gegn FH. Í fyrra settu meiðsli strik í reikninginn og þá kom Halldór ekkert við sögu hjá Fjölni.

Þá hefur Hvöt einnig fengið Milan Lazarevic frá Serbíu en hann er örfættur leikmaður sem getur leikið framarlega á miðjunni eða í fremstu víglínu.

Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild og geta því leikið með Hvöt gegn ÍH/HV í fyrstu umferðinni í annarri deildinni í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.