Fotbolti.net
16.05.09 - 08:07
Hafliði Breiðfjörð

Sonja Björk Jóhannsdóttir í KR (Staðfest)

Sonja Björk í leik með Hetti.

Sonja Björk í leik með Hetti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Sonja Björk Jóhannsdóttir er gengin til liðs við KR en hún kemur til félagsins frá FK Donn í Noregi en þangað fór hún í mars.
Sonja Björk Jóhannsdóttir er 24 ára gömul og hafði áður spilað með Hetti á Egilsstöðum.

Hún vakti athygli í byrjun síðasta árs þegar Sigurður Ragnar Eyjólfsson kallaði hana til æfinga hjá íslenska landsliðinu eftir að hafa séð hana æfa með karlaliði félagsins á snævi þöktum velli.

Hún hefur ýmist leikið með Hetti og Fjarðabyggð í 1. deild kvenna og á að baki 49 leiki og hefur skorað í þeim 30 mörk í deild og bikar.

KR hefur einnig fengið til liðs við sig Svövu Björnsdóttur sem kemur frá Haukum og var á bekknum hjá liðinu í leiknum gegn Stjörnunni í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.