16.05.09 - 10:10
Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar Ingason í Fylki (Staðfest)

Albert Brynjar Ingason er kominn í Fylki að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

Framherjinn Albert Brynjar Ingason er genginn í raðir Fylkis að nýju eftir að hafa leikið í eitt ár með Val. Albert náði að ganga frá félagaskiptum sínum áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.
Albert hefur átt við lítilsháttar meiðsli á liðþófa að stríða að undanförnu en er byrjaður að æfa að nýju.
Albert Brynjar Ingason er 23 ára gamall og var mikill markaskorari upp yngri flokka Fylkis.
Hann er með markaskoraragenin því faðir hans, Ingi Björn Albertsson er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi með 126 mörk og afi hans, Albert Guðmundsson var einn besti knattspyrnumaður Evrópu og lék meðal annars með AC Milan og Arsenal.
Albert á að baki 1 U16 5 U19 og einn U21 árs leik auk þess að hafa leikið 70 leiki í bikar og deild og skorað í þeim 12 mörk.
Hann skoraði fjögur mörk í 17 leikjum með Val í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð.