16.05.09 - 13:25
Brynjar Ingi Erluson
Eiríkur Páll og Kristján Páll til Magna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magni á Grenivík hefur fengið tvo leikmenn til liðs við sig en félagaskiptin gengu í gegn rétt fyrir lok félagaskiptigluggann hér á landi.
Liið hefur þá fengið Eirík Pál Aðalsteinsson frá Þór, en hann kom þaðan frá Magna og er þetta mikill styrkur fyrir Grenvíkinga þar sem Eiríkur var einn af lykilmönnum liðsins síðasta sumar og var hann valinn efnilegasti leikmaður liðsins á lokahófinu, en hann er 22 ára gamall varnarmaður.
Þá hefur liðið einnig fengið Kristján Pál Hannesson frá Þór, en hann er 20 ára gamall bakvörður og hefur verið að spila með Þórsurum á undirbúningstímabilinu og lék meðal annars fyrsta leik liðsins í 1.deildinni í ár.
Magni sækir Hamar heim í fyrstu umferðinni í 2.deildinni í dag og ættu því bæði Eiríkur og Kristján að vera löglegir fyrir þann leik.