Það voru nokkrir fluttir á sjúkrahús í gær eftir að hafa fengið brak í sig þegar mótmælandi lenti á fallhlíf á Allianz Arena í gær. Í gær fór leikur Þýskalands og Frakklands fram á vellinum.
Málið er í rannsókn og mun UEFA refsa einstaklingnum fyrir athæfið. Sá stofnaði bæði áhorfendum og leikmönnum í hættu með þessum gjörningi.
Málið er í rannsókn og mun UEFA refsa einstaklingnum fyrir athæfið. Sá stofnaði bæði áhorfendum og leikmönnum í hættu með þessum gjörningi.
Hann flæktist í vírum áður en hann lenti, vírarnir halda uppi upptökuvél.
Það varð til þess að brak og rusl féll til jarðar og í stúkuna. Hann kom á miklum hraða inn á leikvanginn og þurfti á aðhlynningu að halda því hann lenti harkalega.
Athugasemdir