Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 16. júní 2022 23:30
Kári Snorrason
Davíð Smári: Ég vissi að þetta myndi gerast
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við höfðum trú á þessu hjá okkur allt til enda, þegar við komum hérna inn í hálfleik þá vissi ég bara að það væri eitthvað í loftinu og ég vissi að þetta myndi gerast, hvort sem við myndum í versta falli ná að jafna leikinn eða vinna leikinn, annaðhvort var að fara gerast og eftir fimmtán mínútur í seinni hálfleik þá sá ég hvort það var" sagði Davíð Smári þjálfari Kórdrengja himinlifandi eftir ótrúlegan 4-3 endurkomusigur á toppliði Selfoss.

Lestu um leikinn: Kórdrengir 4 -  3 Selfoss

„Vá loksins, loksins uppskárum við eins og við sáðum. Mér finnst frammistaðan í sumar hafa verið frábær og spilamennska liðsins virkilega góð nánast í öllum leikjunum. En einhvernveginn hefur mómentumið ekki verið með okkur"

„Það er oft þannig þegar illa gengur að missa oft trúnna en ég hef aldrei fundið fyrir því í okkar liði og við vorum staðráðnir í því að halda áfram"

„Það var undir brattann að sækja í hálfleik en við fengum gjörsamlega allt sem við vildum út úr þessum leik hrikalega mikið effort mikill karakter frá strákunum og trú"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan
Slapp
banner