Fotbolti.net
16.07.08 - 07:06
Magnús Már Einarsson

Ásgeir Börkur í Selfoss á láni frá Fylki (Staðfest)

Ásgeir Börkur í leik með Selfyssingum í fyrra.

Ásgeir Börkur í leik með Selfyssingum í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Selfyssingar hafa fengið Ásgeir Börk Ásgeirsson á láni frá Fylki út tímabilið.
Ásgeir Börkur þekkir til hjá Selfyssingum en hann var á láni hjá félaginu í fyrra og hjálpaði því þá að komast upp í fyrstu deildina.

Þessi kant og sóknarmaður hefur komið við sögu í fimm leikjum hjá Fylki í sumar og skorað eitt mark, gegn Víði Garði í Visa-bikarnum.

Selfyssingar hafa leikið vel í fyrstu deildinni í sumar og eru í öðru sæti en Ásgeir Börkur er annar leikmaðurinn sem kemur til liðsins eftir að félagaskiptaglugginn opnaði.

Áður hafði Kristján Óli Sigurðsson samið við Selfyssinga um að leika með liðinu út sumarið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.