Fotbolti.net
16.07.08 - 06:00
Davíð Örn Atlason

Vicente del Bosque ráðinn landsliðsþjálfari Spánar (Staðfest)

Vicente del Bosque

Vicente del Bosque

Canon

Mynd: Getty Images

Vicente del Bosque hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari Spánverja, en hann tekur við af Luis Aragones.
Aragones gerði Spánverja að Evrópumeisturum í sumar og hætti síðan eftir keppnina og er núna tekinn við Fenerbache í Tyrklandi.

Del Bosque, sem að þjálfaði á árum áður Real Madrid var alltaf talinn næsti arftaki Aragones og fyrsta verkefni hans með liðið verður að koma því á HM 2010 í Suður-Afríku.

,,Angel Maria Villar, forseti spænska knattspyrnusambandsins lagði til að Del Bosque yrði næsti landsliðsþjálfari og beiðninni var samþykkt,\" segir talsmaður spænska knattspyrnusambandsins.

Fyrsti leikur del Bosque með landsliðið verður 20. ágúst næstkomandi gegn Austurríkismönnum í vináttuleik.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.