Fotbolti.net
16.07.08 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Páll Hjarðar í KFS (Staðfest)

Páll í leik með ÍBV í fyrra.

Páll í leik með ÍBV í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Varnarjaxlinn Páll Þorvaldur Hjarðar hefur gengið til liðs við 3.deildarlið KFS og mun leika með liðinu út sumarið.
Páll hefur ekkert leikið með ÍBV í sumar og núna hefur hann ákveðið að fara í KFS.

Í fyrra skoraði Páll tvö mörk í nítján leikjum fyrir ÍBV í fyrstu deildinni.

Undanfarin ár hefur Páll verið fastamaður í liði Eyjamanna en hann hefur áður leikið með KFS.

Það gerði hann í annarri deildinni árið 2004 en þá lék Páll einn leik og skoraði eitt mark með KFS þegar hann var að koma til baka eftir meiðsli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.