Fotbolti.net
16.07.08 - 12:03
Magnús Már Einarsson

George Boateng, Halmosi og Tony Warner til Hull (Staðfest)

George Boateng er kominn til Hull.

George Boateng er kominn til Hull.

Canon

Mynd: Getty Images

Hull samdi í dag við þrjá nýja leikmenn en félagið er að styrkja hópinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.
Hull keypti Peter Halmosi og George Boateng auk þess sem félagið samdi við Tony Warner en hann var án félags.

Halmosi, sem er 28 ár gamall kantmaður frá Ungverjalandi, kemur til Hull frá Plymouth Argyle þar sem hann skoraði átta mörk á síðustu leiktíð.

Boateng sem er 32 ára gamall miðjumaður kemur frá Middlesbrough þar sem hann hefur leikið undanfarin sex tímabil.

Warner er markvörður frá Trinidad og Tobago en hann hefur verið að leita sér að félagi síðan Fulham leyfði honum að fara í maí síðastliðnum.

Auk þess gæti Hull samið við Delron Buckley á næstunni en þessi Suður-afríski kantmaður hefur verið á reynslu hjá félaginu að undanförnu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.