Fotbolti.net
16.07.08 - 14:36
Magnús Már Einarsson

Djemba-Djemba til OB í Danmörku (Staðfest)

Djemba-Djemba til OB í Danmörku (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Danska félagið OB Odense hefur gert þriggja ára samning við Eric Djemba-Djemba fyrrum leikmann Manchester United.
Djemba-Djemba sem er kamerúnskur miðjumaður heimsótti Odense í gær og skoðaði aðstæður.

Í kjölfarið náði hann samningum við félagið og verður hann formlega kynntur á fréttamannafundi síðar í dag.

Djemba-Djemba var hjá Manchester United frá 2003-2005 og síðan var hann í tvö ár hjá Aston Villa.

Síðast var hann á mála hjá liði Katar en nú er ljóst að hann mun leika í danska boltanum á næstunni.

Heimild: Bold.dk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.