16.07.08 - 13:26
Hafliði Breiðfjörð
Sinisa Kekic hjá HK út tímabilið (Staðfest)

Kekic í leik með Víkingi í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Kekic í leik með Víkingi í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Sinisa Valdimar Kekic spilar með HK út tímabilið en hann staðfesti í samtali við Fótbolta.net í dag að búið sé að skrifa undir félagaskipti hans frá Víkingi og hann muni væntanlega skrifa undir samning við HK á morgun. Félagaskipti hans eru komin í gegn hjá KSÍ og hann fær leikheimild með HK á morgun.
Björn Einarsson formaður knattspyrnudeildar Víkings staðfesti í gær að félagið hafi samþykkt tilboð HK í leikmanninn og Kekic æfði svo með HK í gærkvöld.
Kekic staðfesti svo við Fótbolta.net í dag að búið sé að skrifa undir félagaskiptin og hann skrifi væntanlega undir samning við HK á morgun og skömmu síðar runnu skiptin í gegn hjá KSÍ.
Kekic lék aðeins þrjá leiki með Víkingi í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark.
Eftir þriðju umferðina tilkynnti Víkingur honum að félagið myndi ekki óska eftir frekara vinnuframlagi frá honum þó svo staðið yrði við samning hans. Því hefur hann ekkert æft með Víkingi eða leikið eftir það.
Viðtal við Kekic um félagaskiptin birtist hér á Fótbolta.net síðar í dag.