Fotbolti.net
16.07.08 - 14:04
Magnús Már Einarsson

Sinisa Kekic: Milos og Ivan gifta sig báðir ef ég skora fimm mörk

Sinisa Valdimar Kekic.

Sinisa Valdimar Kekic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Sinisa Valdimar Kekic mun leika með HK út tímabilið en hann kemur til liðsins frá Víkingi Reykjavík.
,,Mér líst mjög vel á þetta. Ég æfði sjálfur í einn og hálfan mánuð eftir að ég fór frá Víkingi en í gær byrjaði ég loksins að æfa með liði,\" sagði Kekic við Fótbolta.net í dag en hann hefur æft sjálfur og haldið sér í formi eftir að hafa yfirgefið Víking í júní.

,,Ég er í fínu formi. Ég hef æft sjálfur með Zeljko Sankovic hjá HK og hann var alltaf með eitthvað prógramm fyrir mig. Í gær var fyrsta æfingin með liðinu, það var svolítið öðruvísi en þetta kom samt strax.\"

HK er sem stendur í neðsta sæti Landsbankadeildarinnar en Kekic telur að gengi liðsins geti batnað á næstunni.

,,Ég hef horft á nokkra leiki. Þetta er lið sem vantar smá sjálfstraust en ég held að eftir einn sigur muni þetta allt koma. Það vantar bara að vinna leik og þá kemur þetta strax.\"

Ivan Milenkovic og Milos Glogovac, leikmenn Víkings, eru góðir félagar Kekic og báðir hafa þeir ákveðið að giftast kærustum sínum. Þeir hafa heitið því að gifta sig strax í september ef Kekic nær að skora fimm mörk fyrir HK í sumar.

,,Ef að ég skora fimm mörk hafa Ivan Milenkovic og Milos Glogovac lofað að gifta sig strax í september. Þeir eru með flottum íslenskum stelpum og eru búnir að ákveða að gifta sig og ef ég skora fimm mörk eru þeir búnir að lofa að gifta sig strax,\" sagði Sinisa Valdimar Kekic léttur í bragði við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Sinisa Kekic hjá HK út tímabilið (Staðfest)
Milos Glogvac.

Milos Glogvac.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.