Fotbolti.net
16.07.08 - 17:14
Magnús Már Einarsson

Þorkell Máni í Árborg (Staðfest)

Þorkell Máni í Árborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Knattspyrnufélag Árborgar hefur fengið til liðs við sig sóknarmanninn Þorkel Mána Birgisson frá norska liðinu Hönefoss.
Þorkell Máni hefur leikið með Hönefoss undanfarið ár en þar áður lék hann með Selfossi og Hetti á Egilsstöðum.

Þorkell Máni er kannski þekktari sem varnarmaður, enda stór og stæðilegur, en hann hefur leikið sem framherji með Hönefoss með góðum árangri.

,,Þorkell Máni á eftir að styrkja okkur alveg gríðarlega mikið núna þegar seinni helmingur mótsins er að hefjast. Hann er mikill karakter og með frábært hugarfar. Það verður spennandi að geta teflt honum fram í bláu treyjunni,\" sagði Adólf Bragason, þjálfari Árborgar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.