Fotbolti.net
16.07.08 - 19:19
Hafliði Breiðfjörð

Alexander Hleb til Barcelona (Staðfest)

Alexander Hleb er kominn til Barcelona.

Alexander Hleb er kominn til Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Hvít Rússinn Alexander Hleb er genginn í raðir Barcelona frá Arsenal en kaupverðið var 11,8 milljónir punda. Hann fór í læknisskoðun í spænsku borginni í dag og í kjölfarið var gengið frá samningum til fjögurra ára.
,,Ég elska þetta lið,\" sagði Hleb er hann var kynntur sem leikmaður liðsins. ,,Ég mun gera mitt besta og vil vinna allt með Barca.\"

Hleb kemur til Barcelona á sama degi og Ronaldinho yfirgefur félagið gengur í raðir AC Milan en hann er að fara í læknisskoðun hjá ítalska félaginu.

Hleb hafði verið orðaður við Inter Milan en Barcelona hafði betur í baráttunni um hann. Hann er annar leikmaðurinn sem yfirgefur Arsenal í sumar því áður hafði Mathieu Flamini farið til AC Milan og Gilberto Silva verður sá þriðji, hann er á leið til Panathinaikos.

Hleb hafði komið til Arsenal frá Stuttgart í Þýskalandi árið 2005 en þá var kaupverðið 11,2 milljónir punda. Hann verður fimmtu kaup Barcelona í sumar, kemur í kjölfar Seydou Keita, Gerard Pique, Martin Caceres og Daniel Alves.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.