16.08.08 - 14:32
Davíð Örn Atlason
Justin Hoyte til Middlesbrough (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
MIddlesbrough hafa gengið frá kaupunum á bakverðinum Justin Hoyte frá Arsenal.
Arsenal samþykktu þriggja milljóna punda tilboð Middlesbrough í Hoyte í vikunni og hann hefur núna skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.
Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough fær Hoyte sem uppfyllingu fyrir Luke Young, sem fór til Aston Villa.
Nú þegar að Bacary Sagna er heill heilsu hjá Arsenal þá var Hoyte varaskeifa fyrir hann og því gott fyrir hann að fá að spila núna reglulega í stað þess að sitja á bekknum.
Hoyte gekk til liðs við Arsenal árið 2003, þá 18 ára gamall. Hann spilaði 34 leiki fyrir félagið og skoraði eitt mark.

Heimild: Sky