Watford og Liverpool eigast við í 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 11:30 en leikurinn fer fram á Vicarage Road, heimavelli Watford. Caoimhin er í markinu hjá Liverpool.
Fabinho og Alisson verða ekki með Liverpool í dag en þeir hefðu ekki náð í tæka tíð fyrir leikinn þar sem þeir spiluðu með Brasilíu aðfaranótt föstudags.
Þeir fóru því til Spánar og verða klárir í leik í Meistaradeildinn gegn Atlético Madríd.
James Milner og Naby Keita eru á miðjunni. Trent-Alexander Arnold snýr aftur í hægri bakvörðinn.
Watford: Foster, Rose, Masina, Cathcart, Ekong, Sissoko, Femenia, Kucka, Sarr, Dennis, Hernandez
Liverpool: Kelleher, Alexander-Arnold, Matip, van Dijk, Robertson, Henderson, Keita, Milner, Mane, Salah, Firmino
Athugasemdir