Fotbolti.net
16.12.04 - 15:12
Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Þórðarson tekur við Keflavík (Staðfest)

<b><font color='blue'>Guðjón Þórðarson tekur við Keflavík (Staðfest)</font></b>
Canon
Guðjón Þórðarson skrifaði nú rétt í þessu undir þriggja ára samning um að þjálfa bikarmeistara Keflavíkur. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpssins. Þar með er lokið þessari vinsælu sápuóperu sem hefur verið í öllum íþróttamiðlum síðan í haust.
Í gær greindum við frá því að Atli Eðvaldsson hefði neitað Keflvíkingum um að þjálfa liðið. Guðjón er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann var að ganga frá sínum málum.

Í samtali við Fótbolta.net í gærkvöldi vildi Guðjón ekkert gefa upp hvað hann ætlaði að taka sér fyrir hendur. Guðjón var eftirsóttur, bæði hér heima og erlendis en Grindvíkingar voru nálægt því að ganga frá samningum við hann.

Meira um málið síðar í dag hér á Fótbolta.net!

Sjá einnig:
Guðjón Þórðarson í fréttaleit
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.