Fotbolti.net
16.12.08 - 09:52
Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskona Portúgals tekur við þjálfun ÍR (Staðfest)

Liliana Pereira Martins í leik með ÍR gegn Hetti í 1. deildinni í sumar.

Liliana Pereira Martins í leik með ÍR gegn Hetti í 1. deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Liliana Pereira Martins landsliðskona Portúgals hefur verið ráðin þjálfari kvennaliðs ÍR sem verður nýliði í Landsbankadeild kvenna í sumar. Martins sem lék með ÍR í 1. deildinni í sumar tekur við starfinu af Halldóri Þ. Halldórssyni sem hætti með liðið eftir nýliðið tímabil og mun sinna öðrum störfum fyrir félagið.
Í maí 2007 kom Liliana Pereira Martins til landsins til að spila fyrir ÍR í Landsbankadeild kvenna. Á fyrstu æfingu varð hún fyrir því óhappi að slíta krossbönd og gat hún því ekki verið með það sumar.

Á nýliðnu knattspyrnutímabili spilaði hún alla leiki liðsins í 1. deild kvenna, þar stóð hún sig virkilega vel eins og liðið allt. Hún var markahæsti leikmaður liðsins og átti mjög stóran þátt í því að ÍR spilar í Landsbankadeild kvenna á komandi keppnistímabili.

Hún er 27 ára gömul en þrátt fyrir ungan aldur, hefur hún mikla reynslu sem leikmaður og einnig af þjálfun. Hún hefur þjálfað yngri flokka og verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í Portúgal og á Spáni. Liliana hefur spilað 32 leiki fyrir A-landslið Portúgal og á að baki fjöldann allan af leikjum fyrir ungmenna landsliðin.

Meistaraflokksráð ÍR er nú í þessum orðum að vinna í því að ráða aðstoðarþjálfara, en Halldór Þ. Halldórsson fyrrum þjálfari flokksins og nýráðinn yfirþjálfari yngriflokka, mun aðstoða Liliönu á komandi tímabili með einstaklings þjálfun hjá leikmönnum liðsins.

ÍR mun halda flestum af sínum leikmönnum frá síðustu leiktíð en þó ljóst nú þegar að miðvörðurinn sterki Ana Rita Gomes verður væntanlega ekki með liðinu áfram. Félagið stefnir á að fá til sín fleiri erlenda leikmenn og nota þá í bland við ungar stúlkur frá félaginu eins og síðasta sumar.

Knattspyrnudeild ÍR og GÁSKI sjúkraþjálfun í Mjódd hafa gert með sér samstarfssamning um að allir iðkendur knattspyrnudeildar ÍR geti sótt til sjúkraþjálfara og fengið ráðgjöf eða meðferð við þeim meiðslum sem hrjá viðkomandi.

Sjúkraþjálfari og þjálfari viðkomandi flokks vinna síðan markvisst að því að leikmaðurinn komist sem fyrst til æfinga. Síðastliðinn fimmtudag var Dr. Árni Árnasson sjúkraþjálfari í GÁSKA með fyrirlestur um forvarnir og meiðsli í knattspyrnu fyrir foreldra og iðkendur knattspyrnudeildarinnar.
Liliana sem er hér hægra megin á myndinni fagnar með ÍR í haust.

Liliana sem er hér hægra megin á myndinni fagnar með ÍR í haust.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.