Fotbolti.net
16.12.09 - 09:34
Þórður Már Sigfússon

Gunnar Heiðar lánaður til Reading (Staðfest)

Gunnar Heiðar lánaður til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er genginn til liðs við enska 1. deildarliðið Reading frá danska liðinu Esbjerg á lánssamningi sem gildir til 30. júní. Frá þessu er greint á heimasíðu danska liðsins.
,,Gunnar hefur verið fjarri því að vera í byrjunarliðinu á undanförnum mánuðum þar sem þeir Tim Janssen, Sören Rieks og Jesper Lange hafa verið ofar í goggunarröðinni,“ sagði Niels Erik Söndergaard, yfirmaður íþróttamála hjá Reading, í fréttatilkynningu um lánsskiptin.

,,Þar sem hann er einn af launahæstu leikmönnum liðsins og var ekki keyptur til að spila með varaliðinu höfum við fundið hentuga lausn fyrir alla aðila.“

Gunnar Heiðar verður löglegur með Reading þann 1. janúar næstkomandi og gæti spilað sinn fyrsta leik með liðinu gegn Liverpool í ensku bikarkeppninni degi síðar.

Heimild: Heimasíða Esbjerg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.