Fotbolti.net
17.01.05 - 14:26
Hafliði Breiðfjörð

Quashie til Southampton (Staðfest)

Quashie til Southampton (Staðfest)
Canon
Southampton hafa gengið frá 2,1 milljón punda kaupum á Nigel Quashie frá erkiféndum sínum í Portsmouth. Quashie er 26 ára gamall varnarmaður og var fyrirliði Portsmouth. Hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Southampton. Hjá Southampton hittir hann fyrir Harry Redknapp sem var stjórinn hans hjá Portsmouth.
Quashie sagði: ,,Þetta er stórt skref fyrir mig og ég er ánægður með að vera kominn til Harry Redknapp á ný. Ég er viss um að við höldum okkur uppi. Ég hefði ekki komið hingað ef ég efaðist eitthvað um það, en við þurfum að fá nokkur góð úrslit fljótt."

Rupert Lowe stjórnarformaður Southampton sagði: ,,Harry vildi mikið fá Nigel. Hann telur að hann sé sterkur persónuleiki sem muni bæta miklu við hópinn. Við erum hæstánægðir með að hafa hann þriðja leikmanninn sem kemur frá því Harry kom."

Quashie verður væntanlega í byrjunarliðinu er Southampton mætir Liverpool í deildinni um helgina en hann verður ekki með í fjórðu umferð FA Cup þar sem hann hefur þegar leikið í þeirri keppni með Portsmouth.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.