Ítalskir fjölmiðlamenn eru að keppast við að greina frá því að AC Milan hafi náð samkomulagi við Mario Mandzukic um að spila fyrir félagið út tímabilið.
Króatíski sóknarmaðurinn mun fá rúmlega 1,5 milljón evra í laun og verða félagaskiptin staðfest á næstu tveimur til þremur sólarhringum.
Mandzukic, sem verður 35 ára í maí, hefur ekki spilað keppnisleik síðan hann var hjá Al-Duhail í mars í fyrra. Hann býr yfir góðri reynslu úr ítalska boltanum þar sem hann varð Ítalíumeistari með Juventus fjögur ár í röð.
Hann mun veita sóknarleikmönnum Milan aukna samkeppni auk þess að koma með gífurlega mikla reynslu í hópinn.
Athugasemdir