Fotbolti.net
17.02.10 - 11:18
Magnús Már Einarsson

Guus Hiddink tekur við Tyrkjum (Staðfest)

Guus Hiddink tekur við Tyrkjum (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Guus Hiddink hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Tyrklands en hann tekur við starfinu þegar að samningur hans við Rússa rennur út í lok júní.
Þessi reyndi þjálfari greindi frá því í síðustu viku að hann myndi hætta með Rússa eftir að hann mistókst að koma liðinu á HM.

Hiddink hefur núna gert tveggja ára samning við Tyrki með möguleika á tveggja ára framlengingu.

Í fyrra stýrði Hiddink liði Chelsea í nokkra mánuði en í vetur hefur hann verið orðaður við bæði Liverpool og Manchester City.

Þessi 63 ára gamli Hollendingur hefur náð góðum árangri með landslið í gegnum tíðina en auk þess að stýra Rússum þá hefur hann þjálfað Suður-Kóreu, Holland og Ástralíu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.