Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 17. febrúar 2020 19:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leikmenn United með svört sorgarbönd - Til minningar um Gregg
Mynd: Getty Images
Í leik Chelsea og Manchester United munu leikmenn Manchester United leika með svört sorgarbönd.

Það er gert til minningar um Harry Gregg, hetjunnar úr flugslysinu í Munchen sem lést í morgun, 87 ára að aldri.

Gregg var á sínum tíma markvörður Manchester United og var hann hluti af hópi United sem gekk undir nafninu 'Busby Babes'.

Hann hefur oft verið kallaður 'Hetjan í Munchen' eftir magnaða framgöngu eftir flugslysið sem lið United lenti í árið 1958.

Leikurinn hefst klukkan 20:00 og er í beinni á Síminn Sport.
Athugasemdir
banner
banner