Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
   þri 17. febrúar 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Börsungar fá falleinkunn - „Öll lið í deildinni farið illa með hann“
Lamine Yamal klikkaði á vítaspyrnu.
Lamine Yamal klikkaði á vítaspyrnu.
Mynd: EPA
Jules Kounde var lélegasti maður vallarins.
Jules Kounde var lélegasti maður vallarins.
Mynd: EPA
Barcelona tapaði 2-1 gegn Girona í gær og er tveimur stigum á eftir Real Madrid í titilbaráttunni í spænsku deildinni. Spænskir fjölmiðlar fara engum silkihönskum um frammistöðu Börsunga í gær og margir fá falleinkunn.

Lélegasti maður vallarins var varnarmaðurinn Jules Kounde sem fær 3 í einkunn hjá Football-Espana og vægast sagt dapra umsögn. Sagt er að hann hafi ekki náð að hitta samherja.

„Það er erfitt að hljóma ekki illgjarn en það er ekki lið í spænsku deildinni sem hefur ekki skapað sér marktækifæri með því að komast fyrir aftan Kounde eða með því að vaða á hann. Þetta er að hluta taktískt vandamál en hann er ekki að hjálpa neitt," segir íþróttafréttamaðurinn Ruairidh Barlow.

Frenkie de Jong og Fermin Lopez fá báðir 4 í einkunn og sagt að miðsvæðið hafi verið berskjaldað og De Jong varla farið í tæklingu.

Ungstirnið Lamine Yamal fær 5. Hann hafi verið til í að taka ábyrgð, vildi fá boltann og var að reyna. Hann klúðraði hinsvegar vítaspyrnu auk þess að fara illa með annað mjög gott færi.

Besti maður Barcelona var vafalítið markvörðurinn Joan Garcia sem fær 8 í einkunn. Hann hafi haldið Barcelona á floti í leiknum og frammistaða hans eina ástæðan fyrir því að sigurmark Girona kom svona seint í leiknum.

Einkunnir Barcelona:
Joan Garcia – 8
Jules Kounde – 3
Pau Cubarsi – 6
Eric Garcia – 6
Gerard Martin – 5
Frenkie de Jong – 4
Dani Olmo – 5
Fermin Lopez – 4
Lamine Yamal – 5
Ferran Torres – 4
Raphinha – 7
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 26 21 1 4 71 26 +45 64
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 26 15 6 5 43 23 +20 51
4 Villarreal 26 16 3 7 48 31 +17 51
5 Betis 26 11 10 5 42 32 +10 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 26 9 8 9 38 38 0 35
9 Athletic 26 10 5 11 30 36 -6 35
10 Osasuna 26 9 6 11 30 30 0 33
11 Getafe 26 9 5 12 21 29 -8 32
12 Vallecano 26 7 9 10 26 32 -6 30
13 Sevilla 26 8 6 12 34 41 -7 30
14 Girona 26 7 9 10 27 42 -15 30
15 Valencia 26 7 8 11 27 39 -12 29
16 Alaves 26 7 6 13 23 34 -11 27
17 Elche 26 5 11 10 34 39 -5 26
18 Mallorca 26 6 6 14 29 42 -13 24
19 Levante 26 5 6 15 28 44 -16 21
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner
banner