17.03.09 - 13:12
Magnús Már Einarsson
Aron Már Smárason í Breiðablik (Staðfest)

Aron Már fagnar marki með því að leika golfara.

Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn

Breiðablik hefur fengið framherjann Aron Má Smárason til liðs við sig frá Njarðvík.
Aron Már er uppalinn hjá Njarðvík og hefur hann verið með markahæstu mönnum liðsins undanfarin ár.
Í fyrra skoraði þessi 24 ára gamli leikmaður sex mörk í nítján leikjum í fyrstu deildinni. Sumarið 2007 skoraði hann fimm mörk og árið áður skoraði hann níu mörk í annarri deildinni.
Aron Már hefur æft með Breiðablik í vetur og leikið æfingaleiki með liðinu.
Núna hefur verið gengið frá félagaskiptum hans og mun Aron því geta leikið með Blikum gegn Fjölni í Lengjubikarnum annað kvöld.