Fotbolti.net
17.03.10 - 10:29
Magnús Már Einarsson

Iain Dowie tekur við Hull (Staðfest)

Iain Dowie tekur við Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Iain Dowie hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Hull City en hann tekur við liðinu af Phil Brown sem var rekinn fyrr í vikunni.
Dowie, sem er 45 ára, hefur gert samning við Hull út tímabilið en hann verður kynntur á fréttamannafundi í dag áður en að hann stýrir sinni fyrstu æfingu á morgun.

Dowie hefur áður stýrt Crystal Palace, Charlton, QPR og Coventry en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan að hann hætti í þjálfaraliði Newcastle síðastliðið sumar.

Hull City er í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur en Dowie fær níu leiki til að bjarga liðinu frá falli.

Dowie hefur ákveðið að taka Tim Flowers og Steve Wigley inn í þjálfaralið sitt og því mun Brian Horton hætta en hann var áður aðstoðarstjóri hjá Hull.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.