Fotbolti.net
17.03.12 - 13:29
Hafliði Breiðfjörð

Gregg Wylde til Bolton (Staðfest)

Wylde í leik með Rangers gegn Celtic 20. mars á síðasta ári.

Wylde í leik með Rangers gegn Celtic 20. mars á síðasta ári.

Canon

Mynd: Getty Images

Gregg Wylde er genginn í raðir Bolton Wanderers frá Rangers í Skotlandi og hefur skrifað undir þriggja ára samning við enska félagið.
Wylde sem er tvítugur gat farið frítt frá Rangers eftir að félagið rifti samningi hans í vikunni til að létta á fjárhagslegri byrði en félagið var komið í greiðslustöðvun.

,,Að fá leikmann í sama gæðaflokki og Gregg Wylde er frábært og góð viðskipti fyrir félagið, sérstaklega miðað við hversu mörg félög í úrvalsdeildinni sýndu honum áhuga,\" sagði Owen Coyle stjóri Bolton.

,,Hann er ungur, snöggur og spennandi og hefur spilað í alvöru verkefnum með Glasgow Rangers, bæði innanlands og í Evrópu. Gregg er skapandi markaskorari. Við erum hæstánægðir með að fá hann um borð og alla hlakkar tila ð vinna með honum.\"

Enn á eftir að skýrast hvort félagaskipti leikmannsins fái að ganga í gegn enda félagaskiptaglugginn lokaður. Það er eitthvað sem Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, þarf að úrskurða um.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.