Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Man City þarf að eiga „fullkomna frammistöðu“
Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pep Guardiola viðurkennir að Manchester City þurfi að eiga „fullkomna frammistöðu“ gegn Real Madrid í kvöld til að snúa við 3-0 stöðunni í einvígi liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Liðin eigast við klukkan 20:00 í kvöld en Federico Valverde sá um City í fyrri leiknum og skoraði þrennu í fyrri hálfleik.

„Þetta þarf að vera fullkominn leikur á svo margan hátt, við verðum að halda áfram að reyna og reyna. Þetta snýst um að leikmenn komist í fullkomnar stöður. Við vorum með fjóra eða fimm sóknarmenn í fyrri leiknum en skoruðum ekki mark," segir Guardiola.

Aðeins þrjú lið hafa náð að snúa við þriggja marka mun í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.

„Við erum færir um að skapa mörg færi á nokkrum mínútum. Þetta er samt risastórt verkefni, að skora fleiri en þrjú mörk á móti Madrid er ekki auðvelt en allt getur gerst í fótboltaleikjum."

City gæti fengið refsingu frá UEFA eftir að hafa ákveðið að láta lið sitt ekki æfa í gær en samkvæmt reglum þurfa lið í Meistaradeildinni að vera með æfingu sem fjölmiðlar fá 15 mínútna aðgang að.

Athugasemdir
banner