Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 17:00
Elvar Geir Magnússon
Man Utd verði að gera allt til að halda Bruno
Mynd: EPA
Nicky Butt fyrrum leikmaður Manchester United segir að félagið verði að gefa Bruno Fernandes allt sem hann vilji til að halda honum hjá félaginu.

Bruno sýndi enn og aftur um helgina hversu mikilvægur hann er, þegar hann lagði upp tvö mörk í 3-1 sigri gegn Aston Villa.

Reglulega er umræða um að hann gæti farið frá félaginu en vitað er af sterkum áhuga frá Sádi-Arabíu, þar sem portúgalski landsliðsmaðurinn myndi synda í peningum.

„Man United má ekki missa hann, sama hvað það kostar félagið. Þeir mega ekki láta hann fara og þurfa að gefa honum allt sem hann vill. Stuðningsmenn verða bálreiðir ef hann fer," segir Butt.

Bruno er samningsbundinn út næsta tímabil.

„Hann hefur alltaf skapað og skorað mörk. Hann hefur nánast haldið þessu liði uppi sjálfur í tvö ár," segir Butt.
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
Athugasemdir
banner