Fotbolti.net
17.04.09 - 14:14
Hörður Snævar Jónsson

ÍBV fær 25 ára miðjumann frá Úganda (Staðfest)

Eyjamenn hafa fengið liðstyrk.

Eyjamenn hafa fengið liðstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

ÍBV hefur fengið til sín 25 ára gamlan miðjumann frá Úganda til sín en hann heitir Tonny Mawejje. Þetta kemur fram í Eyjafréttum
Hann er þriðji Úganda maðurinn í herbúðum ÍBV en fyrir eru þeir Andrew Mwesigwa og Agustine Nsumba.

Mawejje kemur á láni til ÍBV og því er kostnaðinum haldið í lágmarki.

Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV kom auga Mawejje þegar hann fór til Úganda fyrr á þessu ári og hefur nú fengið hann í raðir félagsins.

Fyrr í vikunni fékk ÍBV þá Ajey Leitch-Smith og Chris Clements að láni frá Crewe en þeir eru báðir 19 ára gamlir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.