17.04.09 - 23:34
Hafliði Breiðfjörð
Óðinn Árnason frá Fram í Þór (Staðfest)

Óðinn í leik með Fram síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn í leik með Fram síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Óðinn Árnason er kominn aftur til uppeldisfélags síns, Þórs á Akureyri, frá Fram en frá þessu var greint á vef Þórs í kvöld.
Óðinn skrifaði í dag undir eins árs samning við félagið en hann er þrítugur varnarmaur sem hefur spilað með Fram og Grindavík undanfarin ár.

Óðinn lék með Þór í öllum yngri flokkunum og síðan fjögur sumur í meistaraflokki, þar af eitt í efstu deild.
24 ára gamall fór hann svo suður og gekk til liðs við Grindavík þar sem hann lék í fjögur tímabil. Undanfarin tvö tímabil hefur hann svo leið með Fram.
Hann á að baki 69 leiki í efstu deild með Grindavík, 15 með Þór, og 24 með Fram. Hann var með Fram í 17 leikjum í Landsbankadeildinni sumarið 2007 en leikirnir urðu ekki nema 7 í fyrra, þegar Óðinn var frá vegna meiðsla drjúgan hluta sumars.

Heimild: Vefur Þórs