Hin hliðin - Hugrún Pálsdóttir (Tindastóll)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliði og smiður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæðafélagsskapur í Aldísi Maríu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Létt yfir Áslaugu Mundu og Gunnhildi Yrsu á landsliðsæfingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafnhildur Björnsdóttir fær að fara með á eyjuna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anna Margrét með boltann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hún var næstmarkahæst í liðinu sem tryggði sér sæti í efstu deild með því að enda í 2. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili og tímabilið á undan var hún markahæsti leikmaður liðsins á fyrsta tímabili þess í efstu deild. Í dag sýnir hún á sér hina hliðina.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 9. sæti
Gælunafn: sumar í liðinu kalla mig Hugga
Aldur: 25
Hjúskaparstaða: á föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2012, 15 ára
Uppáhalds drykkur: pepsi max
Uppáhalds matsölustaður: tokyo sushi er go to þegar ég fer suður
Hvernig bíl áttu: á ekki bíl!
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: úff svo margir! Greys er þarna á toppnum og New girl svo eitthvað sé nefnt
Uppáhalds tónlistarmaður: á engan uppáhalds en Valdimar Guðmundsson eða Friðrik Dór koma sterkir til greina
Uppáhalds hlaðvarp: Þarf alltaf að vera grín?
Fyndnasti Íslendingurinn: Saga Garðars
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Whohoo
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: ég segi aldrei aldrei
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: ætli það sé ekki Gunnhildur Yrsa eða Sif Atla
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Donni
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Áslaug Munda, erfitt að nota hraðann til að komast framhjá henni
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Fyrirmyndin í fótboltanum var Margrét Lára
Sætasti sigurinn: örugglega fyrsti sigurinn okkar í efstu deild á móti ÍBV heima
Mestu vonbrigðin: Við höfum oftar en einu sinni tapað titli á heimavelli án þess að tapa leiknum, þá endar í jafntefli og úrslitin ráðast á markatölu, það er vel svekkjandi. Eða líka tapa bikar eftir vítaspyrnukeppni á heimavelli
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Gunnhildur Yrsa
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Elísa Bríet Björnsdóttir, virkilega efnileg
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: ég hef heyrt að sænsku tvíbbarnir í mfl kk Tindastóls séu bráðmyndarlegir
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Aldís María Jóhannsdóttir
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Anna Margrét
Uppáhalds staður á Íslandi: Krókurinn
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég hljóp einu sinni niður dómarann í leik og lágum bæði kylliflöt eftir það. Kannski ekki skemmtilegt en það var mjög fyndið eftir á
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: ef mér gekk vel í leik eða á æfingu í ákveðnum íþróttatoppi þá reyni ég að nota sama topp í næsta leik
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Ég er Króksari þannig það er ekki annað hægt en að fylgjast með körfubolta þegar Stólarnir keppa. Fylgist svolítið með Crossfit líka
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas X
Í hverju varstu/ertu lélegust í skóla: Sögu eða náttúrufræði
Vandræðalegasta augnablik: Ég var komin í góða stöðu inn í teig í leik í fyrra og rann svo beint fyrir framan markið og dómarinn dæmdi, hélt ég hefði náð að fiska víti en þá gaf hann mér gult spjald fyrir leikaraskap
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: myndi taka Bryndísi Rut fyrirliða, hún er góð að smíða og redda málunum sama hvað það er og svo Aldísi Maríu og Hrafnhildi Björns fyrir gæðafélagsskap
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég byrjaði fótboltaferilinn sem markmaður og var meira að segja fengin til að keppa leiki með strákunum í yngri flokkunum. Pabbi var alls ekki sáttur þegar ég ákvað að hætta í marki þar sem hann var alveg viss um að ég myndi enda í landsliðinu sem markmaður
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Hannah Cade þegar hún kom í fyrra (og er með okkur ennþá), lítil og smávaxin en fáránlega vinnusöm og bara grjótharður miðjumaður
Hverju laugstu síðast: að ég væri að hlusta
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Einhverjar svona keep ball æfingar með engum mörkum
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég veit það ekki, ætli ég myndi ekki spurja stjórn ÍTF hvaða ár sé hjá þeim

Fyrirliði og smiður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæðafélagsskapur í Aldísi Maríu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Létt yfir Áslaugu Mundu og Gunnhildi Yrsu á landsliðsæfingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafnhildur Björnsdóttir fær að fara með á eyjuna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anna Margrét með boltann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




