Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson fór á laugardag í aðgerð á öxl og missir af umspilinu í League One, C-deildinni, með Blackppol.
Daníel meiddist fyrir nokkrum vikum en óljóst var hvort hann gæti spilað undir lok tímabilsins og svo farið í aðgerð eftir tímabil.
Daníel meiddist fyrir nokkrum vikum en óljóst var hvort hann gæti spilað undir lok tímabilsins og svo farið í aðgerð eftir tímabil.
Blackpool er komið í umspil um sæti í Championship-deildinni og mætir liðið Oxford í fyrri undanúrslitaleiknum á morgun.
„Held að þetta séu rúmir 4 mánuðir þangað til að ég má spila aftur," sagði Daníel við Fótbolta.net í gær.
Ef Blackpool klárar einvígið við Oxford með sigri mætir liðið sigurvegaranum úr einvígi Sunderland og Lincoln um sætið í Championship-deildinni.
Daniel Gretarsson season is finished but the operation was a success. Lets hope the playoffs for Blackpool as well 🇮🇸⭐️👌 pic.twitter.com/EnbsMZYdD3
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) May 16, 2021
Athugasemdir