Fotbolti.net
17.07.08 - 06:00
Arnar Daði Arnarsson

Jónmundur Grétarsson í Hauka (Staðfest)

Jónmundur í leik með Haukum sumarið 2006.

Jónmundur í leik með Haukum sumarið 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Jónmundur Grétarsson hefur gengið til liðs við Hauka að nýju. Jónmundur sem er uppalinn hjá Stjörnunni, lék með Haukum sumarið 2006 í 1.deildinni, en eftir tímabilið ákvað hann að fara aftur í Stjörnuna.
Nú hefur Jónmundur hins vegar ákveðið að spila aftur með Haukum. Jónmundur hefur ekki fengið tækifæri til að sýna sig hjá Stjörnunni í sumar og hefur einungis verið einu sinni í hóp.

Í fyrra lék Jónmundur aftur á móti 17 leiki fyrir Stjörnuna og skoraði í þeim leikjum 2 mörk.

Eins og fyrr segir lék Jónmundur með Haukum árið 2006, tímabilið sem Haukar féllu úr 1.deildinni, Jónmundur skoraði þá 7 mörk í 18 leikjum.

Þetta er góð viðbót við leikamannahóp Hauka, en liðið er sem stendur í 3.sæti deildarinnar, en liðið hefur komið skemmtilega á óvart á tímabilinu og er einnig komið í 8-liða úrslit Visa Bikarsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.