Fotbolti.net
17.07.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ungverskur framherji til KA (Staðfest)

Stuðningsmenn KA á góðum degi.

Stuðningsmenn KA á góðum degi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Davíð Rúnar

KA hefur fengið ungverska framherjann Gyula Horvarth til liðs við sig.
Þessi 33 ára gamli leikmaður kom hingað á dögunum á reynslu og hefur núna fengið leikheimild með KA.

Á ferli sínum hefur Horvarth aðallega leikið með liðum í heimalandi sínu.

Hjá KA hittir Horvarth fyrir tvo landa sína. Sandor Matus, markvörð og varnarmanninn Norbert Farkas.

Horvarth hefur þegar fengið leikheimild með KA og getur því leikið með liðinu gegn Fjarðabyggð í fyrstu deildinni í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.