Fotbolti.net
17.07.08 - 13:31
Arnar Daði Arnarsson

Mikel Herrero Idigoras til Álftanes (Staðfest)

Mikel í leik með Álftanes sumarið 2007.

Mikel í leik með Álftanes sumarið 2007.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - AndriJan.net

Mikel Herrero Idigoras hefur ákveðið að snúa aftur til 3.deildar félags Álftanesar frá ÍH. Mikel gekk til liðs við ÍH fyrir tímabilið og lék með þeim 6 leiki og skoraði 3 mörk.
Mikel sem er 25 ára kom fyrst til landsins árið 2006 og lék þá í 2.deildinni með Njarðvík og skoraði þar 2 mörk í 15 leikjum. Hann gekk síðan til liðs við Álftanes í fyrra og spilaði með þeim í 3.deildinni. Og nú eftir hálft tímabil með ÍH hefur hann ákveðið að snúa aftur til Álftanes.

Álftanes hafa verið duglegir að fá leikmenn, því Guðjón Pétur Lýðsson kom til liðsins frá Stjörnunni og þá hafa þeir Andrés Már Logason og Haukur Ársælsson einnig gengið til liðs við Álftanes frá ÍH.

Álftanes er sem stendur í næst neðsta sæti B-riðils 3.deildar en næsti leikur þeirra er í kvöld gegn Hamrarnir/Vinir. Allir þessir fjórir leikmenn sem gengið hafa til liðs við Álftanes eru löglegir í þeim leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.